1.3.2013 | 20:39
Kosningar fár!
Ég er hér að gömlum vana hversu virði er ein kosning ég spyr hvað er ég að gera her en ég er formaður Orkuflokksins sem var stofnaður fyrir alsherjar hrun her á dögunum og vil benda kjósendum að kjósa Orkuflokkin hið fyrsta með kveðjum.
formaður orkuflokksins.
B. Þór.
5.11.2012 | 18:34
Hækja!
Mér finnst að hin einfætti vinstri grænn ætti ekki að fá aðra hækju í komandi kosningum þeir hafa skakklappast með hækju í gegnum sýðasta kjörtímabil og rústað allri heilbrigðri skynsemi í nafni einhvers vendunar konplexa. Þeir eru öfga öfl í öllu sem telst heilbrigð skynsemi ég legg því til að þau verðu lögð inn á bæklunardeildina og þar með koma í veg fyrir að allt landið lendi þar.
2.11.2012 | 18:38
Flón eða séra Flón!
Jóhanna eða séra Jóhann og verðtryggingin mér er spurn hversu langt getur ein manneskja gengið í tvískiningi. Engin hefur slegið sig sem riddara á eins öfgakendan hátt og slegið af á eins lúalegan hátt og Jóhanna, það er engin spurning að verðtryggingin á að fara af en það verður augljóslega ekki fyrr en Jóhanna verður slegin af, við mikinn fögnuð.
13.10.2012 | 20:36
Mer finnst!
Já ég sagði það að mér finnst, það er að segja að lífslöngun hvers einstaklings er sterkari en sjúkdómurinn því vil ég ekki hrósa læknavísindunum fyrir allt sem þeim er ætlað. Það ætti að leggja minni áheirslur á lyf og skurðlækningar en beina athyglini að því að sjúklingar einbeiti sér að því að lækna sig sjálf með hreifingu og viljanum að komast yfir veikindin. Að greinast með sjúkdóm kemur ákveðnum skilaboðum af stað hjá hinum sjúka að hann þurfi að glíma við ákveðin aðstæður um ákveðin tíma sem getur endað með dauða og því virkjar sjúklingurinn lífslöngun sína og ákveður að sigrast á veikindunum og það er sterkara en öll lyf. Þetta er til umhugsunar og gæti verið miklu lengra en lífslöngunnin er aðal aflið í þróunn mankynsins.
12.10.2012 | 19:35
Ég sé ég skil?
Ég sé að allt er í megnustu vitleisu allstaðar ekki bara í stjórnmálunum heldur einnin í hinni almenna raunveruleika er allt í rugli. Þess vegna segi ég að ég skil það er vegna þess að engin skilur hvað hinn segir þetta er allt rugl og ég bendi á að ef þið farið á sýningu geðfatlaðara í Nýlistasafninu, Skúlagötuni Artíma gallerý, þá fattið þið um hvað er að ræða.
6.10.2012 | 00:53
Esb vandræði!
Eru einhver vandræði ég get ekki séð það, mér líður svo vel og við verðum komin í Evrópusambandið áður en menn vita af. Við erum í eðli okkar Stór Evrópa og við óttumst ekki Golíat því við erum Davíð og það ætti að segja allt um okkur. Við semjum og ætlum að gleypa heiminn en heimurinn er of stór fyrir hrokafillt kokið okkar og þar við situr. Ég legg til að við lítum á okkur sem jarðarbúa og við ættum að þroskast upp á við ég vil benda á að það gæfuspor að ganga í ESB er heillaspor fyrir mannkynið því það er merkilegt að sjálfselskir hrokagikkir getið slegið af kröfum sínum um algjört heimsyfirráð.
4.10.2012 | 20:21
Myndlistarsýning.
Vegna alþjóðlega geðheilbrigsdagsina verður haldin myndlistarsýning í Nýlistarsafninu Skúlagötu laugardaginn 6 október. Ég lofa nýrri vídd í myndlist og ég vona að þið sem flest mætið til að fagna því að geðfatlaðir séu sjálfbjarga og geti komið heiminnum á óvart með frumlegum og skemmtilegum skilning á lífinu, með kveðju B Þór.
30.9.2012 | 17:42
Meinlæti er skaðlegt!
Meinlæti kemur í veg fyrir heilbrigða hugsun, og retta tilfinningu fyrir eiginn líkama eins og grænmetisætur eru að útbreiða. Menn hafa verið að þróast í þúsundir ára en vísindinn voru að fæðast í gær ég legg því engan trúnað á þau þó að tilviljanir hafa ráðið því að þau hafi gengið upp hingað til. Vísindinn eru þó á rettri leið á meðan það er hægt að gagnrýna þau en passið þið ykkur á meinlæti, þó að það sýnist við fyrstu sýn hollara að borða grænmeti og hreifa sig segir það ekkert um hugarfar og árangur í lífinu meinlæti er hættulegt, skál og meiri bjór.
19.9.2012 | 20:58
Ég bíð!
Ég Bjarni Þór Þorvaldsson listamaðurinn B Þór bíð ykkur öllum á myndlistarsýningu í Art gallerý á Skúlagötunni hin 10 október á alþjóðadegi geðfatlaða, en þar mun ég vera með 3 - 4 myndir. Ég er alltaf að þróast og nú tel ég að ég sé kominn með eigin stíl sem er í reyndina nýr ismi. Ég sýni eitt málverk og tvær til þrjár tússmyndir sem ég tel að sé algjört nýsköpun, verið velkominn með kveðju. B Þór.
7.9.2012 | 18:42
Hin kalda krumla!
Nú hefur innanríkisráðherra ákveðið að leggja sína köldu krumlu á netspilavíti og smálán mer er spurn hvað ætla hin vökullu augu ríkisvaldsins að láta staðar numið, því ekki að treista dómgreind einstaklinga og ákveða að nota sitt líf að eiginn vild. Ég legg til að menn snúi sér að Sjálfstæðisflokknum sem hefur í heiðri hin frjálsu einstaklings framtakið og lítur ekki á fólk sem " lúser þó þau seu ekki ráðherra" það er miskilningur að ætla allir séu fávitar og þurfi ráðleggingar ráðherra líttu þér nær, ég er full fær um að sjá um mig sjálfur, takk.